Um okkur

Orkustofnun starfar undir yfirstjórn Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins samkvæmt lögum og reglugerð um Orkustofnun.

Um okkur

Menu

Raforkueftirlitið

Náttúruauðlindir

Orkuskipti

Upplýsingar

Stjórnsýsla

Orkusetur Orkustofnunar

Hlutverk Orkuseturs er að stuðla að aukinni vitund almennings og fyrirtækja um skilvirka orkunotkun og möguleika til orkusparnaðar. Verkefni Orkuseturs eru einnig á sviði nýrra orkugjafa og gerð fræðsluefnis. Orkusetrið er óháð og sjálfstæð eining sem vinnur að markmiðum sínum sem einskonar tengiliður milli stjórnvalda, almennings, fyrirtækja og stofnana.

Heimasíða Orkuseturs
Hero

Af hverju var Orkusetur stofnað?

Orkusetrið er stofnað af Orkustofnun í samstarfi við iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu auk þess sem Samorka kemur að fjármögnun setursins.
Innan orkusviðs Evrópusambandsins (ESB) er að finna sjóð undir heitinu Intelligent Energy – Europe (IEE). Meðal þeirra verkefnaflokka sem IEE er ætlað að styrkja er stofnun svokallaðra orkusetra eða orkuskrifstofa (Energy Agenies) í aðildarlöndunum. Þeim er ætlað að starfa svæðisbundið og hafa þegar verið stofnaðar um 350 slíkar skrifstofur að tilstuðlan IEE víðs vegar um Evrópu.

Samgöngu- og ökutækjastefna

Meðal hlutverka Orkuseturs er að finna og kynna leiðir til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis í samgöngum. Orkusetur setur sér því eigin stefnu varðandi kaup, leigu og notkun bifreiða.

Þessari stefnu mun Orkusetur fylgja með eftirfarandi að leiðarljósi:

  • Draga úr notkun jarðefnaeldsneytis.

  • Auka hlut eldsneytis frá endurnýjanlegum orkugjöfum.

  • Að ofangreindum markmiðum vill Orkusetur vinna m.a. með eftirfarandi leiðum:

  • Bifreiðar keyptar á vegum Orkuseturs skulu knúnar vistvænum orkugjöfum þar sem orkunýtni verður höfð til viðmiðunar í vali á bifreið.

  • Ef ofangreind ökutæki henta illa eða fást ekki á viðunandi kjörum skal leitast við að velja bifreiðar með lægstu eyðslugildi sem völ er á hverju sinni.

  • Þegar leigðar eru bifreiðar, bílaleigu- eða leigubifreiðar, skal ávallt leitað þjónustu fyrirtækja sem bjóða upp á bifreiðar knúnar vistvænum orkugjöfum og/eða visthæfum bifreiðum með útblástursgildi undir 120 CO2g/km. Ávallt skal óskað eftir slíkum bifreiðum nema sérstakar aðstæður kalli á stærri bifreiðar.

  • Ef nauðsynlegt reynist að nýta stærri bifreiðar vegna sérstakra aðstæðna skal leitast við að velja orkunýtnasta ökutækið í hverjum stærðarflokki.

  • Starfsfólki Orkuseturs verður boðið upp á námskeið í vistakstri sem dregur úr eyðslu og umhverfisáhrifum og eykur jafnframt öryggi við akstur.

  • Starfsfólk Orkuseturs skal nýta almenningssamgöngur á vinnutíma þegar það á við og leitast við að ganga styttri vegalengdir nema sérstakar aðstæður kalli á annað.

  • Leitast verður við að draga úr ónauðsynlegum ferðum með hjálp upplýsingatækni og aukinni samnýtingu ferða.