Gagnagrunnar og gagnaþekjur
Gagnasöfn Orkustofnunar (OS) eru margbreytileg að eðli og gerð, en í gegnum tíðina hafa safnast margs konar gögn á stofnuninni, bæði geymd á stafrænu formi og sem pappírsskjöl á skjalasafni. Helstu stafrænu gagnasöfnin eru staðtengd og annaðhvort geymd í Oracle gagnagrunni eða í ArcInfo landupplýsingakerfi stofnunarinnar. Breytingar sem gerðar hafa verið á OS á liðnum árum og áratugum hafa leitt til þess að eignarhald gagna deilist nú í einhverjum tilfellum á fleiri stofnanir, eða að umráðaréttur gagna hefur með stjórnvaldsaðgerðum verið færður til annarra, auk þess sem samstarfsverkefni hafa leitt af sér sameiginlegt eignarhald gagna í gagnasöfnum. Skýr skil í eignarhaldi gagnasafna eru mjög mikilvæg bæði þegar kemur að notkun gagnanna innanhúss og sérstaklega ef aðrir aðilar þurfa að fá gögn til notkunar.
Aðgengi kortagagna OS
Orkustofnun stefnir að því að gera þau staðtengdu gögn sem unnin hafa verið fyrir opinbert fé á vegum stofnunarinnar aðgengileg öðrum. Þannig munu þeir sem þurfa á gögnunum að halda geta fengið aðgang að þeim annaðhvort hjá stofnuninni eða í gegnum Orkuvefsjá (OVS) á netinu. Aðeins hluti t.d. hæðar- og vatnafarsgagna í landupplýsingagrunni OS hefur verið vigraður fyrir opinbert fé á vegum OS og eru einungis slík gögn í vatnafars- og hæðarþekjum OS. Í þeim tilfellum þar sem gögn hafa enn ekki verið aðgreind í gagnagrunni vegna afhendingar til annarra mun geta komið til einhver kostnaður fyrir notanda. Stefnan er sú að ganga frá sem mestu efni þannig að opinber gögn megi afhenda með lágmarkstilkostnaði.
Gögn sem birtast í OVS fela þó yfirleitt aðeins í sér hluta þess efnis sem gagnagrunnar eða gagnaþekjur geyma. Í þessum kafla verður á næstu mánuðum settur fram listi yfir helstu gagnasöfn og gagnaþekjur Orkustofnunar. Í fyrstu eru settar fram upplýsingar um þau landrænu gagnasöfn OS sem upplýsingar hafa verið birtar um á lýsigagnavefnum Landlýsingu. Fljótlega munu koma inn upplýsingar um fleiri gagnasöfn.
Landupplýsingaþekjur:
Orkugrunnkort og tengd gagnasöfn
OGK Kortblöð. Blaðskiptingar orkugrunnkorta og kortaskrár
OGK Skönnuð kort. Skannanir 755 orkugrunnkorta (tiff og jpg)
OS20 Hæðarlínugrunnur+. Vektorgrunnur með 5 metra hæðarlínubili 1:20 000+
OS20 Vatnafar+. Vektorgrunnur yfir ár og vötn 1:20 000+
OS20 Kortlögð svæði. Þekja kortlagðra svæða 1:20 000
Jarðhiti og tengd gagnasöfn
Fiskeldi - Jarðhiti. Fiskeldisstöðvar sem nota jarðhita í framleiðslunni
Gróðurhús – Jarðhiti. Gróðurhús sem nota jarðhita í framleiðslunni
Iðnaður – Jarðhiti. Iðnfyrirtæki sem nota jarðhita í framleiðslunni
Sundlaugar. Sundlaugar sem nýta jarðhitavatn og aðrar sundlaugar
Borholur. Upplýsingar um gagnagrunn fyrir borholur
Hitaveitur. Óuppfærð þekja fyrir hitaveitur (í endurskipulagningu)
Raforka
Raforkuver. Þekja yfir staðsetningu raforkuvera sem selja rafmagn út á landsnetið
Vatn
Vatnagrunnur Íslands. Vektorgrunnur 1:250 000 fyrir ár og vötn á Íslandi
Vatnsveitur. Óuppfærð þekja fyrir vatnsveitur (í endurskipulagningu)
