Í erindi sínu á fundi stjórnarskrárfélagsins fjallaði Kristinn Einarsson, yfirverkefnistjóri, meðal annars um hlutverk Orkustofnunar og þær breytingar sem hafa orðið og eru fyrirséðar, þá setti hann þær í samhengi við það sem segir um auðlindamálin í tillögu að nýrri stjórnarskrá sem stjórnlagaráð hefur lagt fram.
Lesa meiraÍ kjölfar þess að formaður Landverndar hefur ásakað Orkustofnun um að starfsmaður stofnunarinnar, Skúli Thoroddsen, hafi verið vanhæfur til að undirrita umsögn stofnunarinnar um þingsályktunartillögu um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, vill Orkustofnun koma eftirfarandi á framfæri.
Lesa meiraÞað er mat Orkustofnunar að með þessu verði markmiðum um sjálfbæra uppbyggingu raforkuframleiðslunnar stefnt í hættu, segir í umsögn Orkustofnunar um tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða sem nú liggur fyrir Alþingi.
Lesa meira
Orkusetur hefur nú smíðað gagnvirkt netkennsluforrit um virkjanir sem hafa yfir 10 MW af uppsettu afli. Þar má finna yfirlitskort og helstu tölfræðiupplýsingar um vatnsafls og jarðvarmavirkjanir á Íslandi. Forritið er afar einfalt í notkun og einungis þarf að nota tölvumúsina við lausn verkefna.
Lesa meiraOrkustofnun, Rannís og stjórnsýslustofnanir átta annarra Evrópulanda hljóta styrk að upphæð tæpum 2 milljónum evra úr 7. Rammaáætlun Evrópusambandsins í þágu jarðhitaþróunar í Evrópu. Orkustofnun sem fer með stjórn verkefnisins fær um 600.000 evrur til verkefnisins.
Lesa meira
Eldsneytishópur Orkuspárnefndar hefur gefið út nýja eldsneytisspá sem nær allt til ársins 2050.
Lesa meiraHS Orka útvegar fiskeldinu rafmagn og heitan hreinan sjó, sem nú rennur ónýttur til sjávar.

Orkusetur og Iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands boða til fundar um orkumál heimila föstudaginn 27. apríl 2012, kl. 13-15:30 í Orkugarði, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík.
Orkumálastjóri birti nýlega grein í Public Service Review þar sem fjallað er um þróun endurnýjanlegrar orku og hagvöxt á Íslandi
Orkustofnun fer með leyfisveitingavald samkvæmt lögum nr.13/2001 um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis. Annað útboð vegna sérleyfa á Drekasvæðinu hófst þann 3. október 2011 og lauk í dag, 2. apríl.
Eftirtalin fyrirtæki sóttu um sérleyfi:
· Eykon, óskráð félag.
· Faroe Petroleum og Íslenskt kolvetni ehf.
· Valiant Petroleum og Kolvetni ehf.
Iðnaðarráðherra, Oddný G. Harðardóttir og Orkumálastjóri, Guðni A. Jóhannesson fluttu ávarp í upphafi fundar. Áhugaverð erindi voru flutt af Starfsfólki Orkustofnunar og Bjarna Bjarnasyni forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur.
Niðurstaða útboðs sérleyfa til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Dekasvæðinu verður kynnt
Orkustofnun fer með leyfisveitingavald samkvæmt lögum nr.13/2001 um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis (kolvetnislögunum). Í því útboðsferli sem nú stendur yfir vegna sérleyfa til rannsókna og vinnslu kolvetnis á norðurhluta Dreksvæðisins og lýkur þann 2. apríl nk. hafa skapast væntingar um olíuvinnslu á svæðinu og umræðan um ríkisolíufélag fengið byr undir vængi. Orkustofnun vill af því tilefni reifa stuttlega stofnun slíks félags út frá gildandi regluverki og áherslum stofnunarinnar í því sambandi.
Lesa meiraOrkustofnun flytur erindi um haghvæmni varmadælna á ráðstefnu lagnafélagsins um varmadælur fimmtudaginn 22. mars í Lagnakerfamiðstöð Íslands.
Ársfundur Orkustofnunar verður haldinn föstudaginn 30. mars kl. 14:00 – 17:00 í
tónlistar – og ráðstefnuhúsinu Hörpu við Austurbakka í salnum Rímu.
Áhugasömum er bent á að skrá þátttöku
Í erindi sínu fjallaði Guðni um jarðhitanýtingu á Íslandi, stöðu orkumála og hvernig Íslendingar hafa verið að nýta jarðhita í gegnum árin.
Olíuleitarfélögin TGS og Volcanic Basin Petroleum Research (VBPR) söfnuðu sýnum úr 1000 m háum hamri á hafsbotni á Drekasvæðinu í september sl. í samræmi við leitarleyfi sem Orkustofnun veitti TGS í sama mánuði. Meira en 200 kg af grjóti og seti náðust á tólf sýnatökustöðum.
Lesa meira Orkustofnun veitir vegagerðinni leyfi til breytinga á Svaðbælisá ásamt tilheyrandi varnargörðum
Áhugaverðar niðurstöður norsku olíumálastofnunarinnar og Háskólans í Bergen voru kynntar á vetrarmóti norrænna jarðfræðinga sem fram fór í janúar.
Lesa meiraOrkustofnun hefur, með vísan til 4. og 5. grein raforkulaga nr. 65/2003, með síðari breytingum og 4. og 5 gr. reglugerðar um framkvæmd raforkulaga, nr. 1040/2005, með síðari breytingum, veitt vatnsvirkjun í Skógargerði ehf leyfir til að reisa og reka allt að 145 kW vatnsaflsvirkjun í Rangá við Skógargerði.
Við úthlutun styrkja verður meðal annars sérstök áhersla lögð á hagkvæma orkunýtingu og orkusparnað, innlenda orkugjafa, vistvænt eldsneyti og sparnað jarðefnaeldsneytis. Umsóknar frestur er til 1.mars 2012
Orkustofnun auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings við eftirlit með framkvæmd raforkulaga.
Lesa meira
Orkusetur hlaut á dögunum alþjóðlega viðurkenningu Energy Globe fyrir gagnvirkar reiknivélar sem aðstoða neytendur við að draga úr umhverfisáhrifum samgangna.
Lesa meiraOrkustofnun í samstarfi við Sjómælingar Íslands kynnti á dögunum dýptarmælingar og efnistöku í Hvalfirði og Kollafirði.
Lesa meiraOrkustofnun tekur þátt í Vetrarmóti norrænna jarðfræðinga sem fram fer í Hörpu dagana 9. til 12. janúar. Fyrirlestrar um jarðfræði Jan Mayen hryggjarins verða á mánudag og fimmtudag.
Lesa meiraOrkustofnun tekur reglulega saman verð á heitu vatni frá hitaveitum með reglugerð og birtir hér á vef Orkustofnunar.
Orkustofnun veitti, þann 22. desember 2011, Landsneti hf. leyfi til að reisa og reka flutningsvirki milli Búðarhálsvirkjunar og Hrauneyjafosslínu 1
Orkustofnun veitti þann, 15. desember 2011, Landsneti hf. leyfi til að reisa og reka flutningsvirki milli Fitja og Helguvíkur.
Lesa meira
Í samræmi við 6. gr. laga nr. 78/2002, um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar og fjárlög fyrir árið 2012 hefur iðnaðarráðherra ákveðið fjárhæð niðurgreiðslna sem taka munu gildi frá og með 1. janúar 2012.
Lesa meira