Fréttir

Dr. Ingvari Birgi Friðleifssyni afhent viðurkenning í Kína - 20/12/2010

Forstöðumanni Jarðhitaskólans, Dr. Ingvari Birgi Friðleifssyni, var afhent viðurkenning á jarðhitaráðstefnu í Kína.

Lesa meira

Jólaerindi orkumálastjóra - 17/12/2010

Í morgun flutti Guðni A. Jóhannesson, orkumálastjóri, hið árlega jólaerindi í Orkugarði.  Eins og vanalega er erindið birt hér á vef Orkustofnunar.

Lesa meira

Norðmenn undirbúa opnun Jan Mayen-hryggs fyrir olíuleit - 15/12/2010

Norska ríkisstjórnin hefur ákveðið að hefja undirbúning að opnun hafsvæðisins á Jan Mayen-hrygg fyrir olíuleit. Tillaga að áætlun til mats á áhrifum olíuleitarstarfseminnar hefur nú verið send út til umsagnar af norska olíu- og orkuráðuneytinu. Liðin eru 16 ár frá því að Norðmenn hófu síðast að opna nýtt svæði fyrir olíuleit, og eru þetta því nokkur tíðindi almennt á sviði olíuleitar við Noreg.

Lesa meira

Orkustofnun veitti Orkubúi Vestfjarða leyfi til stækkunar á Mjólkárvirkjun í Arnarfirði úr 10 MW í 12,05 MW þann 1. nóvember 2010. - 30/11/2010

Framkvæmdir á grundvelli leyfisins, auðkenndar sem Mjólká II og III, skulu hefjast innan fjögurra mánaða frá útgáfu leyfis og ljúka fyrir 31. desember 2011.

Lesa meira

Orkusjóður auglýsir styrki til jarðhitaleitar á köldum svæðum 2010 - 30/11/2010

Megintilgangur jarðhitaleitar er að stuðla að enn frekari nýtingu jarðvarma til húshitunar í landinu með það að markmiði að bæta búsetuskilyrði og auka aðgengi að þeim gæðum og möguleikum sem nýting jarðhita hefur í för með sér.

Lesa meira

Meðalafköst háhitaholna - 25/11/2010

Árið 2008 voru 102 borholur í rekstri á íslenskum virkjanasvæðum og nam meðalmassaframlag hverrar holu 0,78 milljón tonn og meðalfrumorkuframlag 1,19 PJ.

Lesa meira

Mikil aukning jarðvarmanotkunar á síðustu árum og bætt nýtingarhlutfall til raforkuvinnslu - 24/11/2010

Jarðvarmanotkun hefur aukist mikið á síðustu árum með tilkomu nýrra jarðvarmavirkjana, en jafnframt hefur nýtingarhlutfall frumorku til raforkuvinnslu aukist talsvert.

Lesa meira

Frumorkunotkun jarðvarmavirkjana og hitaveitna á Íslandi til ársins 2009. - 23/11/2010

Orkustofnun hefur nú gefið út skýrsluna “Frumorkunotkun jarðvarmavirkjana og hitaveitna á Íslandi til ársins 2009”. Lesa meira

Málþing um eignarhald og áhættutöku orkufyrirtækja - 23/11/2010

Stýrihópur um heildstæða orkustefnu stendur fyrir málþingi um eignarhald orkufyrirtækja og áhættutöku sem tengist rekstri þeirra.

Lesa meira

Orkutölur 2010 komnar á vefinn - 17/11/2010

Orkustofnun hefur nú um nokkurra ára skeið gefið út bæklinginn Orkutölur. Bæklingurinn sýnir talnaefni um ýmsa orkuþætti á Íslandi í mynda- og töfluformi.
Lesa meira

Teikningaskrá 1938-1998 á vefsíðu Orkustofnunar - 12/11/2010

Í teikningasafni Orkustofnunar 1938-1998 eru um 37500 teikningar og hefur skrá yfir safnkostinn hingað til aðeins verið aðgengileg í Oracle gagnagrunni innan stofnunarinnar. Nú hafa nokkrir efnisþættir úr skránni verið birtir á vefsíðu OS og er hægt að leita að upplýsingum eftir nokkrum leiðum.

Lesa meira

Ráðstefna um orkunýtni í byggingum - 3/11/2010

Iðnaðarráðuneytið stendur fyrir ráðstefnu um orkunýtni í byggingum í samstarfi við Orkustofnun, Orkusetur, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Neytendastofu og Samtök iðnaðarins.

Lesa meira

Sjálfbær orkukerfi 2050 - Norræni Orkusjóðurinn auglýsir eftir tillögum að rannsóknarverkefnum. - 27/10/2010

Þau svið sem lögð er áhersla á, eru endurnýjanlegir orkugjafar, markaður og dreifikerfi og vistvænar samgöngur. Í umsókninni þarf að leggja áherslu á a.m.k. tvö eða þrjú ofangreind svið.

Lesa meira

Lokað hjá Orkustofnun frá 14:25 vegna kvennafrídags - 25/10/2010

Í tilefni kvennafrídagsins hefur Orkustofnun ákveðið að loka móttökunni að Grensásvegi 9 frá kl. 14:25. Þetta er gert til að gefa þeim konum sem starfa hjá Orkustofnun tækifæri til að taka þátt í hátiðahöldum í tilefni dagsins.
Lesa meira

Norræna ráðherranefndin býður sveitarfélögum á Norðurlöndum til samkeppni um titilinn Norrænt orkusveitarfélag 2011 - 25/10/2010

Norrænu orkumálaráðherrarnir hafa í dag formlega blásið til samkeppni um titilinn ,,Norrænt orkusveitarfélag”. Samkeppninni er ætlað að vekja athygli á og styðja við aðgerðir norrænna sveitarfélaga sem stuðla að sjálfbærum lausnum í orku- og lofts-lagsmálum.

Lesa meira

Iceland Geothermal 2010 - 25/10/2010

Ráðstefnan um hinn íslenska jarðvarmaklasa þar sem Michael Porter mun flytja aðalerindið verður haldin í Háskólabíó þann 1 nóvember næstkomandi.  Við vekjum athygli á afar athyglisverðri dagskrá og fjölda áhugaverðra erinda. 
Lesa meira

Norrænir styrkjamöguleikar á ýmsum sviðum- kynningafundir 2. og 3. nóv - 22/10/2010

Í tengslum við þing Norðurlandaráðs 2.-4. nóvember verða haldnir kynningafundir um samnorræna styrkjamöguleika á nokkrum sviðum. Lesa meira

Árlegir fyrirlestrar nemenda Jarðhitaskólans - 11/10/2010

Árlegir fyrirlestrar nemenda Jarðhitaskólans um verkefni sín verða haldnir í Víðgelmi þriðjudaginn 12. október og hefjast kl. 09:30.
Lesa meira

Ísland og Bandaríkin skrifa undir samning um nýtingu á hreinni orku frá jarðhita - 6/10/2010

Ísland og Bandaríkin skrifuðu í dag undir samning sem miðar að aukinni þekkingu á jarðhitatækni um heim allan og frekari nýtingu hennar.  Sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, Luis E. Arrega, og Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra skrifuðu undir samninginn í Þjóðmenningarhúsinu.

Lesa meira

Að framleiða hreina orku úr sorpi og brennanlegum efnum - nýtt vinnsluferli - 4/10/2010

Fimmtudaginn 7. október, kl. 15:00 ætla þeir Mikael Rüdlinger og Karl-Magnus Mattsson frá BNL Clean Energy að vera með kynningu í Orkugarði á lausnum er snúa að útblásturslausri orkutækni.

Lesa meira

Jarðhitavika í Orkugarði - 4/10/2010

Vikuna 4-8 október verður margt um manninn í Orkugarði, en hingað til lands eru komnir yfir 100 sérfræðingar tengdir jarðhita úr fjórum heimsálfum vegna funda um jarðhitamál sem hér verða haldnir undir sameinginlega heitinu "Geothermal Week in Reykjavík".

Lesa meira

Niðurstöður fýsileikakönnunar á framleiðslu DME á Íslandi. - 1/10/2010

Nú hafa verið birtar niðurstöður fýsileikakönnunar á DME framleiðslu á Íslandi, en könnunin var samstarfsverkefni Mitsubishi Heavy Industries, Heklu ehf., Iðnaðarráðuneytis, ELKEM, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Mannvits og Orkustofnunar.

Lesa meira

Notkun ljósdíóðu-lampa gæti dregið stórlega úr rekstrarkostnaði vegna raforkunotkunar hjá garðyrkjubændum. - 1/10/2010

Samstarfsverkefni Orkuseturs og Vistvænnar Orku efh. um tilraunaræktun með ljósdíóðu-lömpum bendir til að spara megi um og yfir 50% í raforkunotun til gróðurhúsalýsingar.

Lesa meira

Efnahagslegur samanburður húshitunar með jarðhita og olíu árin 1970-2009. - 29/9/2010

Orkustofnun hefur gefið út skýrsluna “Efnahagslegur samanburður húshitunar með jarðhita og olíu árin 1970-2009”.

Lesa meira

Leiðangur á Drekasvæðið - 23/9/2010

Nýverið lauk vel heppnuðum leiðangri á Drekasvæðið, en hann stóð yfir 17. ágúst til 15. september. Leiðangurinn var samstarfsverkefni Orkustofnunar, Olíustofnunar Noregs og Hafrannsóknastofnunarinnar.

Lesa meira

Málþing um afgjald af auðlindum - 13/9/2010

Stýrihópur um heildstæða orkustefnu stendur fyrir málþingi afgjöld af orkuauðlindum í eigu ríkisins.

Lesa meira

Orkumál í Grímsey - 13/9/2010

S.l. fimmtudag fór orkumálastjóri, ásamt starfsmönnum Akureyrarskrifstofu Orkustofnunar, tveimur fulltrúum RARIK og Akureyrarbæjar og fulltrúa iðnaðarráðuneytisins, til fundar við íbúa í Grímsey um orkumál í eyjunni.

Lesa meira

Umsókn Platina Resources Ltd. um leyfi til leitar og rannsókna á gulli og öðrum málmum á Austurlandi dregin til baka - 9/9/2010

Platina Resources Ltd. hefur með erindi þann 9. september 2010 dregið umsókn sína um leyfi til leitar og rannsókna á gulli og öðrum málmum á Austurlandi til baka.

Lesa meira

Kynningarfundur - Orkuáætlun 7.rá - 3/9/2010

Kynning á orkuáætlun 7.rá verður haldin á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 14. september kl. 9:00-11:30. Lesa meira

Norræna ráðherraráðið og Samgöngunefnd þess, hafa nú opnað fyrrir umsóknir vegna verkefna er tengjast rafbílavæðingu í samgöngum - 3/9/2010

Leitað er eftir úrvals verkefnum er tengjast rafvæðingu í samgöngum. Lagt er af stað með 12 miljónir norskra króna, sem úthlutað verður til valinna verkefna. 

Lesa meira

Fyrirhuguð gjaldskrárhækkun Orkuveitu Reykjavikur. - 31/8/2010

Af gefnu tilefni, vegna umræðna um fyrirhugaða gjaldskrárhækkun Orkuveitu Reykjavíkur, vill Orkstofnun koma eftirfarandi á framfæri.

Lesa meira

Styrkir til endurglerjunar húsnæðis – Átaksverkefni 2010 - 30/8/2010

Iðnaðarráðuneytið í samvinnu við Orkustofnun/Orkusetur hefur ákveðið að styrkja húseigendur sem ráðast vilja í endurbætur á einangrun húsnæðis í þeim tilgangi að draga úr orkunotkun og þar með kostnaði við upphitun þess.

Lesa meira

Nordisk Energiforskning auglýsir stöðu upplýsingafulltrúa lausa til umsóknar. - 19/8/2010

Norrænar Orkurannsóknir (Nordisk Energiforskning) sem er stofnun Norrænu ráðherranefndarinnar varðandi orkurannsóknir og -þróun, auglýsir lausa stöðu upplýsingafulltrúa stofnunarinnar til umsóknar.

Lesa meira

Orkustofnun veitir Suðurorku ehf leyfi til rannsókna á vatnasviðum Skaftár og Tungufljóts. - 12/7/2010

Þann 8. júlí, 2010, veitti Orkustofnun leyfi til rannsókna á vatnasviðum Skaftár og Tungufljóts til handa Suðurorku ehf.

Lesa meira

Átján styrkir til að rannsaka og kynna innlenda orkugjafa og hagkvæma orkunotkun     - 28/6/2010

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra hefur staðfest tillögur Orkuráðs um styrki úr Orkusjóði til rannsóknar- og kynningarverkefna fyrir árið 2010. Styrkirnir eru veittir verkefnum sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun.

Lesa meira

Útgáfufrétt: Orkumál raforka komin út. - 7/6/2010

Ársritið Orkumál raforka kemur ekki út á prenti í ár og er því eingöngu sent út rafrænt á áskrifendur. Einnig er hægt að nálgast blaðið á vef Orkustofnunar.

Lesa meira

Orkustofnun veitir ráðgjöf vegna uppbyggingu á orkufrekum matvælaiðnaði - 31/5/2010

Hrunamannahreppur, Íslensk matorka ehf. og Matís ohf. Hafa undirritað viljayfirlýsingu vegna uppbyggingar á orkufrekum matvælaiðnaði á Flúðum sem m.a. felur í sér hlývatnseldi á hvítum matfiski. Uppbyggingin verður unnin í samstarfi við Orkustofnun þar sem stofnunin verður leiðbeinandi og ráðgefandi.

Lesa meira

Handbókin Litlar vatnsaflsvirkjanir hefur verið endurútgefin - 18/5/2010

Orkustofnun hefur endurútgefið handbókina Litlar vatnsaflsvirkjanir sem var gefin út árið 2003 af þáverandi iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti.
Lesa meira

Stjórnunarstörf hjá IRENA - 11/5/2010

Ísland er aðili að nýrri Alþjóðastofnun um endurnýjanlega orku IRENA. Stofnun er um þessar mundir að auglýsa eftir starfsmönnum í lykil og stjórnunarstöður.
Lesa meira

Fyrirlestur í Orkugarði. Örvun jarðhitaholna með hægfara stýrðri sprengingu - 11/5/2010

Á vegum HS Orku hf kemur hingað til lands maður að nafni Dale Seekford frá fyrirtækinu Long Bow Hunter. Fyrirtækið sérhæfir sig m.a. í því að örva jarðhitaholur með hægfara og stýrðri sprengju. Lesa meira

Ársfundur Orkustofnunar 2010 - 18/3/2010

Ársfundur Orkustofnunar verður haldinn 26. mars, kl.8:30-11:00 í Orkugarði, Grensásvegi 9.

Lesa meira

Önnur útgáfa Geothermal Development and Research in Iceland er komin út - 17/3/2010

Önnur útgáfa jarðhitabæklingsins Geothermal Development and Research in Iceland er komin út. Lesa meira

Málþing um forðafræði jarðhitakerfa - 16/3/2010

Jarðhitaklasinn GEORG (Geothermal Research Group) stóð að málþingi um forðafræði jarðhitakerfa 4. mars 2010 í Orkugarði.
Lesa meira

Enskur vefur Orkustofnunar í breyttri mynd - 16/3/2010

Nýr enskur vefur Orkustofnunar hefur nú litið dagsins ljós. Vefinn, sem inniheldur umfangsmiklar upplýsingar um orku- og auðlindamál á Íslandi, er að finna á slóðinni www.nea.is Lesa meira

Orkustofnun veitir Íslenska kalkþörungafélaginu leyfi til leitar og rannsókna á kalkþörungaseti á hafsbotni í Dýrafirði, Tálknafirði og Patreksfirði fyrir tímabilið 2010-2012. - 1/3/2010

Orkustofnun veitti Íslenska kalkþörungafélaginu ehf. leyfi til leitar og rannsókna á kalkþörungaseti á hafsbotni í Dýrafirði, Tálknafirði og Patreksfirði þann 8. febrúar 2010.

Lesa meira

2. útboð  á Drekasvæðinu 2011. - 1/3/2010

Iðnaðarráðherra hefur ákveðið að 2. útboð sérleyfa til rannsókna og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu muni fara fram árið 2011 á tímabilinu 1. ágúst til 1. desember.

Lesa meira

Dr. Tinker - Global Energy - Building 21st Century Bridges - 26/2/2010

Íslandsnefnd Alþjóðaorkuráðsins (ICE-WEC) í samstarfi við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík standa fyrir erindi, föstudaginn 5. mars n.k. kl. 15:00-16:00 í stofu M.1.01 (Bellatrix) í húsnæði HR við Nauthólsvík.
Lesa meira

Ný yfirlitsskýrsla um rannsóknir vegna olíuleitar á Gammsvæðinu - 26/2/2010

Orkustofnun fékk þá Bjarna Richter og Karl Gunnarsson sérfræðinga hjá ÍSOR til að taka saman yfirlit um olíu- og gasrannsóknir sem stundaðar hafa verið á Gammsvæðinu út af Norðurlandi undanfarinn áratug og gefa ráðleggingar um frekara framhald þeirra. Lesa meira

Mistúlkun á skýrslu Orkustofnunar - 18/2/2010

Að gefnu tilefni vill Orkustofnun leiðrétta misskilning sem hefur verið áberandi í umræðunni undanfarið hvað varðar skýrslu Orkustofnunar frá desember sl. um mat á vinnslugetu háhitasvæða. Lesa meira

Dreifing jarðhitans og tengsl hans við berggrunninn í ljósi nýrrar túlkunar á jarðfræði Íslands - 17/2/2010

Orkustofnun býður til fyrirlestrar. Haukur Jóhannesson mun halda fyrirlestur í Orkugarði 24. febrúar kl. 13:00, sem ber heitið: Dreifing jarðhitans og tengsl hans við berggrunninn í ljósi nýrrar túlkunnar á jarðfræði Íslands.

Lesa meira