Bókasafn Orkustofnunar
Bókasafn Orkustofnunar er sérfræðisafn í orkumálum, auðlindanýtingu og jarðvísindum.
Stóran hluta efnisins er ekki að finna annars staðar og er því mikilvægur hluti af heildarsafnkosti landsins.
Safnkosturinn er yfir 20.000 titlar og er skráður í Gegni – http://www.gegnir.is/ , landskerfi bókasafna.
Skýrslur Orkustofnunar og forvera hennar eru skráðar í Gegni og flestar aðgengilegar þar á rafrænu formi.
Unnið er að því að skrá greinargerðir, og gera þær aðgengilegar rafrænt. Nú þegar eru greinargerðir frá árunum 1980-1999 komnar í Gegni, með fullum texta.
Þá er allt útgefið efni Jarðhitaskólans aðgengilegt rafrænt með fullum texta.
Meðal annars efnis eru bækur, skýrslur ÍSOR, ráðstefnurit, doktorsritgerðir og skýrslur frá öðrum útgefendum.
Eldra efni má finna hér í eldri leitarvél safnsins - t.d. greinargerðir Orkustofnunar, þær sem ekki eru enn komnar í Gegni
Bókasafn Orkustofnunar hefur frá upphafi greitt sinn hlut í landsaðgangi að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum á http://www.hvar.is/ . Fjölmörg vísindatímarit á fagsviði stofnunarinnar eru í þessum landsaðgangi. Eldri árgangar sem ekki eru í landsaðgangi eru oft til á pappír í safninu.
Safnið þjónar fyrst og fremst starfsfólki og nemendum Orkustofnunar, Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna og Íslenskra orkurannsókna. Safnið býður notendum aðgengi að ritum og upplýsingaþjónustu í tengslum við rannsóknir, nám og kennslu.
Safnið er einnig opið almenningi, þótt safnefni sé fyrst og fremst til afnota á staðnum. Þá er hægt að senda fyrirspurnir til safnsins.
Safnið er opið frá kl. 9 – 16 alla virka daga.
Póstfang safnins er: bokasafn@os.is
Forstöðumaður bókasafns :
Rósa S. Jónsdóttir – rosa.s.jonsdottir@os.is
