Reynsla og þekking á jarðhitaauðlindinni sé aðgengileg
Orkuveita Reykjavíkur skal tryggja að sú þekking á jarðhitaauðlindinni og reynsla sem aflast við nýtingu hennar sé aðgengileg og gagnsæ jafnt almenningi sem fræðasamfélögum.
Upplýsingar um frumorkuvinnslu, massavinnslu, niðurdælingu, gaslosun, þrýstingslækkun í tilgreindum eftirlitsholum og hitastigslækkun í tilgreindum eftirlitsholum sem getið er hér að framan undir auðlindastjórnun skulu gerð opinber af hálfu Orkuveitu Reykjavíkur á 1. almanaksári frá framkvæmd mælinga í samræmi við leiðbeiningar Orkustofnunar.
Skilaskyldum gögnum, þar á meðal upplýsingar um eðli og umfang auðlindar og viðbrögð jarðhitakerfsins við vinnslu skulu gerð opinber og aðgengileg að hámarki 5 árum frá gerð þeirra í samræmi við leiðbeiningar Orkustofnunar. Telji Orkuveita Reykjavíkur vegna viðskiptahagsmuna eða samkeppnissjónarmiða mikilvægt að framlengja trúnaði yfir ákveðnum upplýsingum getur Orkuveita Reykjavíkur óskað þess við Orkustofnun til 5 ára í senn, gegn rökstuðningi.
