Eftirlit 

Orkuveita Reykjavíkur mun nýta ákveðnar borholur til eftirlits með breytingum eðlisástands í jarðhitakerfinu. Staðið verður reglulega að efnaeftirliti og niðurstöður þeirra kynntar stofnuninni í eftirlitsskýrslu. Einnig verður fylgst með grunnvatni, lífríki, virkni jarðhita og útstreymi lofttegunda.

Orkuveitu Reykjavíkur ber að skila eftirlitsskýrslu til Orkustofnunar árlega. Mælibúnaður sem notaður er til mælinga á hitastigi, þrýstingi, vermi og rennsli jarðhitavökva skal hannaður, framleiddur og gæðaprófaður í samræmi við leiðbeiningar Orkustofnunar og gildandi íslenska, evrópska og/eða alþjóðlega staðla, í þessari röð. Um skil á gögnum til Orkustofnunar skal fylgja leiðbeiningum Orkustofnunar sem eru í gildi á hverjum tíma. Þá skal Orkuveita Reykjavíkur uppfæra reiknilíkan af jarðhitakerfinu á minnst 5 ára fresti í samræmi við almennar kröfur Orkustofnunar til reiknilíkana af jarðhitakerfum á hverjum tíma. Fyrirtækið skal ávallt hafa aðgang að þeirri tæknilegu þekkingu sem þarf vegna reksturs orkuversins. Þá skal tryggt að fyrirtækið hafi ávallt fjárhagslega burði til að efna allar skuldbindingar vegna starfsemi orkuversins. Mannvirki og tæki eru eign Orkuveitu Reykjavíkur og er fyrirtækinu frjálst að nýta mannvirki á svæðinu undir aðra starfsemi í samræmi við ákvæði laga á hverjum tíma.

Senda grein

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica