Græna orkan - Vistorka í samgöngum

Græna orkan er heiti á klasasamstarfi um orkuskipti sem miðar að því að auka hlut visthæfra innlendra orkugjafa í samgöngum á kostnað innflutts kolefnaeldsneytis. Iðnaðarráðherra hafði forgöngu um verkefnið sem undirbúið var í samstarfi við önnur ráðuneyti, stofnanir og sveitarfélög og hefur skipað verkefnisstjórn til að þróa samstarfið áfram og fá fleiri þátttakendur og samstarfsaðila til liðs við Grænu orkuna. Formaður stýrihóps Grænu Orkunnar er Sverrir Viðar Hauksson og verkefnisstjóri er Ágústa Loftsdóttir.
Nánari upplýsingar um Grænu orkuna er að finna á vef iðnaðarráðuneytis.
